15/08/2018
Uppsetning á fallegum veggháf.
Hann toppaði þetta fallega eldhús.
Á þessa síðu mun ég setja inn myndir og upplýsingar um það sem ég er að gera hverju sinni. Get einnig sérsmíðað eftir óskum.
15/08/2018
Uppsetning á fallegum veggháf.
Hann toppaði þetta fallega eldhús.
14/07/2018
Fáðu fast verðtilboð í uppsetningar og frágang á innréttingum.
Góð samskipti, vönduð vinnubrögð, fallegur frágangur, góður tækjakostur og reynsla.
Við getum útvegað allt sem þarf í frágang. Borðplötur, stein, gler, sérsmíði úr stáli o.fl.
Það getur einfaldað hlutina töluvert að hafa aðgang að öllum þessum atriðum á sama stað.
11/07/2018
Stílhreint útlit og vandaður frágangur detta aldrei úr tísku.
10/07/2018
Breytingar unnar á verkstað.
Yfirleitt koma upp verkefni sem þarf að leysa jafn óðum og verk er unnið. Hér þurfti sem dæmi að stytta sýnilegan kant á borðplötu.
Þá er platan söguð með sleðasög, kantlímd og kanturinn fræstur og pússaður. Þetta var allt gert á verkstað.
Útkoman er glæsileg og ekki að sjá að neitt hafi verið átt við plötuna.
10/07/2018
Uppsetningar á eldhúsinnréttingum.
Hér er verið að taka úr borðplötu fyrir vask. Með réttu verkfærunum næst bestur árangur og ryk er í algjöru lágmarki. Þarna er búið að saga 3 hliðar af 4 og eins og sjá má er nánast ekkert ryk sem fylgir aðgerðinni.
19/10/2017
Jólin nálgast
23/05/2016
Falleg framreiðslubretti taka morgunmatinn uppá næsta level, sérstaklega þegar hann er borðaður úti í garði.
Útfærslurnar og stærðirnar eru nánast endalausar.
Olíuborin eik með leðuról. 27x90cm 9.900kr
31/03/2016
Sófaborð, forstofubekkur, eldhúsbekkur eða bara hvað sem hverjum hentar. Smíðað eftir pöntun og séróskum.
20/03/2016
Þetta er farið að taka á sig mynd.
18/03/2016
Update: þetta stefnir í góða helgi. Hvað ætli sé að verða til? Endilega deilið myndinni. Skurðarbretti í verðlaun fyrir einhvern sem svarar svo rétt.
16/03/2016
Það er eitthvað að fæðast.
28/04/2015
Gjöf. Skartgripatré, olíuborin eik og hnota.