Happie

Happie

Share

Flytjum inn ljúffenga ávexti frá Kanaríeyjum og hjálpum fólki að skapa drauma heimili sín á Íslandi.

Photos from Happie's post 04/01/2026

Hamrabrekkur 10 eru tilbúnar!

Þetta verkefni var mjög skemmtilegt og mikil útrás fyrir sköpunargleðina.

Við viljum þakka sérstaklega Mood Interiors fyrir frábæra þjónustu og aðstoð, ásamt frábærum kjörum á fyrsta flokks flísum og eldhúsborðplötu. Endalaust af ótrúlega fallegum lausnum í boði og mælum við með að kíkja við í verslun þeirra.

Ljósakerfið er frá Plejd og þökkum við Ískraft fyrir framúrskarandi þjónustu. Plejd kerfi er klárlega framtíðin og ótrúlega auðvelt fyrir hvern sem er að forrita lýsinguna eftir sínu höfði.

Besta byggingavöruverslun landsins Húsasmiðjan Grafarholti fær líka risaþakkir fyrir góða þjónustu og aðstoð einsog ávallt.

Við erum að hefja fleiri verkefni og eigum fleiri lóðir. Við bjóðum upp á að byggja hús frá grunni fyrir fólk og afhenda fullbúið, einnig getum við verið innan handar í framkvæmdum ef fólk vill gera þetta sjálft!

Þökkum Gunnar Bjarki einnig fyrir þessar frábæru myndir!

Photos from Happie's post 06/11/2025

Hér er eitt af mörgum húsum úr smiðu Happie. Mikil ást lögð í verkið.

Sveit í borg.

Húsið er til sölu.

06/09/2025

Aaaaalveg að verða klárt. Eigum pláss fyrir eitt hús til viðbótar. Verður það húsið þitt? Koddu í sveit í borg!

Photos from Happie's post 01/09/2025

Dreymir þig um að búa í sveit en missa ekki nálægðina við bæinn? Heyrðu í okkur!

Við erum að sérhanna og smíða hús eftir þörfum hvers og eins. Lóðirnar eru eignarlóðir í Suðursveit Mosfellsbæjar.

Rólegt og fallegt hverfi umvafið fallegri náttúru.

Hér má sjá myndir af húsi sem að kaupendur bíða ólmir eftir að geta flutt inn í. Verkið er á lokametrunum!

Verkefnið hefur gengið vonum framar og samband kaupanda og seljanda orðið að vináttu um ókomna tíð. Það standa allir saman í sveitinni!

Smartlýsing og hljóðdúkur í loftið mun gefa lokahljóminn í verkið!

Skoðum einnig að selja stakar lóðir.

27/08/2025

Fimm hús tyrfð á einum degi.

Torfþak, eða ekkert þak!

Photos from Happie's post 05/08/2025

Hér í Suðursveit Mosfellsbæjar er allt á fullu. Þetta fallega hús á lokametrunum og verið að græja öll smáatriðin að innan ásamt því að koma stórum potti fyrir.

Þetta hús fer að öllum líkindum á sölu og ef einhvern langar að taka forskot á sæluna er velkomið að vera í sambandi við okkur fyrir frekari upplýsingar.

Einnig erum við með pláss fyrir eitt verkefni hjá okkur, eigum töluvert af lóðum sem við getum selt sér eða byggt eftir ykkar höfði.

Photos from Happie's post 10/02/2025

Norðurljósahúsið tilbúið!

Baðherbergisblöndunartækin og flísarnar frá ebson.reykjavik eru úr öðrum heimi!

gunnarbjarkiii og juliii_kovalenko mættu í heimsókn og tóku þessar mögnuðu myndir.

Erum svo að leggja lokahönd a tvö stærri hús - tökum að okkur eitt i viðbót þetta árið, erum með lóðir. Sjáum um allt frá jarðvinnu og hönnun, að þvi að sjóða fyrsta hafragrautinn!

Photos from Happie's post 07/12/2024

AVÓKADO TÍMABILIÐ ER HAFIÐ!

Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að okkar uppáhaldstími er genginn í garð og það þýðir að uppskerutíminn er runninn upp á yndislegu eyjunum Tenerife, La Palma og La Gomera.

Það eru ekki margar aðrar þjóðir sem fá að njóta uppskerunnar frá Kanaríeyjum en við erum að sjálfsögðu ein af þeim, enda eiga þessar eldfjallaeyjur margt sameiginlegt með Íslandi - ekki er það þó veðrið...

Yfirleitt erum við með papaya í boði allan ársins hring, en síðustu tvær vikur duttu út vegna kuldahrets í mars, þegar plönturnar voru að blómstra. En frá og með næstu viku verður allt komið í eðlilegt horf!

Þetta er allt fáanlegt í Krónan (Krónunni) og þið þekkið Avókadóin okkar á hvítu límmiðunum "Kveðja frá Kanaríeyjum!"

Látum svipmyndir frá uppáhalds akrinum okkar á La Palma fylgja!

Photos from Happie's post 09/11/2024

Erum að leggja lokahönd á þetta verkefni. Hönnuðum og framkvæmdum frá A-Ö fyrir ferðaþjónustuna.

Eigum lóðir og ætlum að taka að okkur eitt hús í viðbót sem við getum afhent um mitt næsta ár.

Verður það húsið þitt?

Photos from Happie's post 02/11/2024

Eigum pláss fyrir eina húsapöntun í viðbót. Afhendist fullbúið í maí/júní með eldhúsi og gólfefni sem við hönnum saman.

Sköpum saman - eigum lóðir í verkið.

Hér eru svipmyndir frá verki sem rís hratt. Það hefur verið steypt og timbur hlutinn reistur á samtals 7 vikum.

Þetta verkefni er í halla svo gengið er inn á 2. Hæð og svalir á þakinu.

Allt að gerast!

Photos from Happie's post 19/10/2024

Erum við að fara að skapa draumaheimili þitt saman?

Undanfarin ár höfum við verið að skapa frá grunni heimili og hús, allt frá hönnun húsa og framkvæmdir þar til allt er klárt.

Okkur þykir mikilvægt að mæta þörfum hvers verkefnis fyrir sig og höfum við pláss fyrir tvö hús á næsta ári. Við höfum aðgang að lóðum á stór-Hafravatnssvæðinu.

Ef þig langar að flytja rétt við bæjarmörkin nær náttúru í glænýtt hús, hannað að þínum þörfum - endilega hafðu samband!

Meðfylgjandi myndir sína svipmyndir nýjustu verkefna.

Want your business to be the top-listed Furniture Store in Mosfellsbær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address

Mosfellsbær